LEGO® SERIOUS PLAY® vinnustofur

Skapandi leiðir til lausna og árangurs

Vinnustofur

Stefnumótun í rauntíma

Faglegt samstarf

Starfsþróun stjórnenda

Bætt samskipti á vinnustaðnum

Betri teymisandi

Aukið traust í teyminu

Árangursdrifið hugarfar

Vöruþróun og virðisauki

Fagleg sjálfsmynd teymisins

Innleiðing frumkvöðlamenningar

Bætt verkaskipting teymisins

Fræðsluáætlun vinnustaðarins

Bætt upplýsingarflæði

Samstilling markmiða 

Árangursrík endurgjöf á vinnustaðnum

Viðskiptaþróun fyrirtækisins

Auðkenni fyrirtækis og ásýnd

Frá hugmynd til framkvæmdar

Sköpun nýrra viðskiptatækifæra

Sálrænt öryggi á vinnustaðnum

Teymisfundir – endurbætt ferli

Innihaldsríkt líf að starfi loknu

Aukin innsýn í verkefni annarra

LSP_CertifiedFacilitator_Logo_RedBlack_Final_101416_Web_NObackground

LEGO® SERIOUS PLAY® er skapandi leið til lausna og þróunar sem byggð er á vísindalegum rannsóknum og laðar fram þekkingu og hugmyndir með því að tengja þær við innsæi og ímyndunarafl. Hún byggist á því að allir taka jafnan þátt í ferlinu og deila hugmyndum sínum og þekkingu.

LEGO®SERIOUS PLAY® er mjög árangursrík leið til þess að finna skapandi og raunhæfar lausnir við fjölþættum áskorunum.

Byggðar eru myndlíkingar sem gera okkur mögulegt að eignast nýja sýn á veruleikann og kalla fram viðhorf, hugmyndir og þekkingu sem okkur var áður hulin og ómeðvituð.

LEGO®SERIOUS PLAY® er byggð á þeirri sannfæringu að skapandi hugsun og ímyndunarafl sé vannýtt auðlind og að við höfum öll hæfni til þess að finna lausnir við flóknum áskorunum með því að deila hugmyndum og þekkingu og nýta þau samlegðaráhrif sem þannig verða til.

Aðferðin hentar mjög vel sem hluti af stefnumótun og til þess að kalla fram lausnir í hinu flókna rými þar sem skapandi hugsun og viðskiptaþróun mætast. 

Ég hef viðurkennd starfsréttindi sem leiðbeinandi í LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni og er meðlimur í Association of LSP Master Trainers.

Hver vinnustofa hefst með viðtali til þess að skilgreina áskorunina og skoða hvernig aðferðin geti best komið að notum.

Síðan er gerð áætlun um tímalengd og markmið með hliðsjón af viðfangsefninu hverju sinni.

Vinnustofurnar eru mjög áhrifaríkar fyrir teymi, fyrirtæki og stofnanir sem vilja virkja skapandi hugsun og lausnir og geta verið allt frá 1 klst ef um kynningu á aðferðinni er að ræða allt að 2ja daga vinnustofu eftir því hvað viðfangsefnið er yfirgripsmikið.

Hafðu samband

Sláðu á þráðinn í síma +354 891 7677 eða sendu mér tölvupóst á netfangið steinunn@confirma.is
Phone: +354 891 7677  // Email: steinunn@confirma.is

© Steinunn Ragnarsdóttir. All rights reserved.